6.8.2008 | 05:58
From the Vaults...Dylan - ha, enn og aftur?
Ó,já - enn og aftur.
Ekki finnst góð upptaka af Dylan tónleikum hér í Reykjavík í vor. Ég hef að vísu hlustað á eina upptöku sem gefur einhverja mynd af hversu góðir tónleikarnir voru - en ég set hana ekki inn á spilarann, hljómgæðin eru mjög lítil (ekki alslæm samt) og það þjónar engum tilgangi nema til að veita veikan enduróm af góðum tónleikum. Kannski læt ég góða upptöku frá Glasgow í ár fara inn bráðlega.
- en hér eru nokkur lög af diskunum "From the Vaults 1&2" - tær snilld í flutningi og hljómi, aðallega frá 1997-99. Semsagt á spilaranum hér til hægri Dylan live, á leið til þess hápunktar sem árið 2000 færði okkur. Já, hápunktur sagði ég og þeir halda bara áfram að koma.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2008 | 05:37
Aðfaranótt 21.júní
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.6.2008 | 02:00
Árið er 2008 - Og ég fór um síðir til Mallorca.
Ferð mín til Mallorca gerði bæði að staðfesta gamla fordóma um SÓLARLANDAFERÐIR og einnig stórlega að breyta hugmyndum mínum um þennan gamla sólarlanda áfangastað, Mallorca. Undur falleg eyja. Ég mun gefa stutta skýrslu fljótlega, þó ekki væri nema til en að festa á "blað" hugmyndir og hughrif, en þangað til býð ég ykkur upp á nokkrar ljósmyndir í albúminu Mallorca 08. - og á tónlistarspilaranum er nýtt gamalt efni, Sergei Rachmaninov og Dmitri Shostakovitch, nokkur verk frá Lake Constanz Festival16.maí 2007 og svo gullmolinn frá Dylanshrine.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.5.2008 | 19:36
Dylan í ham - í kaldhömruðu íþróttahúsi.
Þetta verður stutt hjá mér, ég var ánægður með tónleikana í gær - hvað flutning laganna áhrærir. Þetta húsnæði, Nýja Laugardalshöllin, hentar alls ekki fyrir standandi tónleika, sviðið var alltof lágt og ég var ekki ánægður með hljómgæðin - en sjálfsagt hefði það ekki verið betra í gömlu Höllinni.
Dylan og hljómsveit fluttu þarna 17 lög á 2 tímum, 10 laganna voru af seinustu þrem plötum kappans en hin 7 voru frá sjöunda áratugnum. Einhver hefur nefnt að seinustu plötur hafi ekki vakið mikla athygli - en það er alrangt: Time out of Mind frá 1997 fékk mörg Grammyverðlaun og er almennt talin í hópi meistaraverka Dylans, Love and Theft kom út 2002 og fékk góðar viðtökur - Modern Times sem om út í hitti fyrra var víða valin besta plata ársins 2006 (m.a. í Rolling Stone tímaritinu),platan fór í fyrsta sæti víða um heim m.a. á Billboard og hér á Íslandi.
Söngur Dylans var fyrirtak í Nýju Höllinni, líklega sá sterkasti frá 2003, við fengum mjög góðar útgáfur af Stuck inside of Mobile..- The Levee gonna Break - Tryin to get to Heaven - Nettie More- I´ll be your Baby Tonight - Workingmans Blues#2 - Spirit on The Water - It´s Alright Ma- When the Deal goes Down - Ballad of a Thin Man - Blowing in The Wind - og hin sex lögin voru ekki illa flutt, en svona hittu mig ekki í hjartastað. Þetta voru fínir tónleikar með listamanni sem enn er frumlegur og er virkur í útgáfu. Hinsvegar var ég á tónleikum Dylans í Osló í fyrra í Spectrum og þar var setið (stórt hús, ca.10.000 manns) - setið í hálfhring um sviðið allir sáu vel, hljómurinn var frábær og nánast hvert einasta lag hitti í hjartasað. Munurinn liggur bara í húsnæðinu, því ef eitthvað er þá er Dylan enn betri í ár - sérstaklega sönglega.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.5.2008 | 14:11
Jæja Bob Dylan - Íslendingar eru ekki afleitir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.4.2008 | 02:42
Bob Dylan er fluttur!
Gleðitíðindi! Tónleikar Bobs 26.maí hafa verið fluttir frá Egilshöll í nýja salinn í Laugardalshöll. Þetta finnst mér mjög til bóta og það er gott fyrir ykkur að tónleikahaldararnir hafa enn til sölu 2000 miða og stefna á tónleika með rúmlega 8000 manns. Ég hef ekki verið á tónleikum í þessum nýja sal, vitið þið hvernig hljómburður er þarna? Fróðir menn segja mér að allt sé bertra en Egilshöll, ekki svo mikið vegna hljómburðar heldur vegna þess að höllin er stór geimur, eða þannig.
Ég hef verið á tónleikum hjá Bob í 10.000 manna höll, 8000 og 6000 manna húsum og svo í 2200 sæta leikhúsi - og ég get bara sagt ykkur það að alltaf var það töfrandi stund, þó nálægðin og krafturinn í Sheperd´s Bush leikhúsinu í London 2003 hefði sinn sérstaka sjarma. Hinsvegar voru tónleikarnir 2002 í Rotterdams Ahoy líka eftirminnilegir (10.000 til 12.000 manns í íþróttahöll) - en þar heyrði ég lög af glænýrri plötu Dylans, Love and Theft og auk þess var ofsalega eftirminnilegt að heyra þarna lag af Saved - "Solid Rock" og ekki síður cover útgáfu af sígildu lagi "Man of Constant Sorrow" og svo "Blind Willie McTell" og "If Dogs Run´s Free" o.s.fr.
Ég skora á ykkur, ekki missa af tónleikunum Bob Dylan í Nýja sal Laugardalshallarinnar, ég veit að hann og hljómsveitin eru í mjög góðu formi, um það vitna góðir dómar um Suður Ameríku tónleikaferðina í febrúar og mars 2008: http://www.boblinks.com/#0223 og þó að þetta sé nokkurskonar áhangenda síða(ekki þar fyrir, menn eru oft mjög gagnrýnir og jafnvel miskunarlausir á Boblinks), þá fengu tónleikarnir einnig mjög góða dóma í blöðum og tímaritum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.4.2008 | 22:50
Dylan í Argentínu 13.3.08.
Á spilaranum hér til hliðar eru tónleikar Bob Dylans í Córdoba, Argentínu þann 13.mars 2008. Meistarinn Soomlos hljóðritaði tónleikana á Neumann 140, án leyfis að sjálfsögðu (susss og humm), yfirleitt er nafn þessa manns trygging fyrir bestu mögulegri upptöku. Ég hef trú á að þetta sé einn og sami maðurinn, Soomlos, því upptökurnar eru svipaðar að gæðum. Hinsvegar er ótrúlegt hvað maðurinn fer víða til að taka Dylan leynilega upp - og ekki aðra listamenn. Á seinasta ári var hann að "störfum" í USA, í Evrópu, Ásralíu og Nýja Sjálandi og nú í Suður Ameríku, hann virðist hafa góða sjóði eða traustan banka - nema hann sé starfsmaður Dylans:)
Eins og vanalega eru lögin ekki í réttri röð, því miður, þau raðast tilviljunnarkennt upp og það er sama hvað ég pæli í þessu, ég finn ekki lausn á því, en hér er nú samt lagalistinn:
Córdoba, Argentina
Orfeo Superdomo
13.mars 2008
Lagalisti:
1. Leopard-Skin Pill-Box Hat (Bob á rafgítar)
2. It Ain't Me, Babe (Bob á rafgítar)
3. Watching The River Flow (Bob á rafgítar)
4. Love Sick (Bob á orgel/hljómborð og áfram til loka tónleikanna, Donnie á raf-mandolín)
5. Rollin' And Tumblin'(Donnieá raf-mandolín)
6. Spirit On The Water (Bob á munnhörpu auk orgels)
7. High Water (For Charlie Patton) (Donnie á banjó)
8. Workingman's Blues #2
9. Desolation Row (Donnie á raf-mandólín)
10. Honest With Me
11. When The Deal Goes Down
12. Highway 61 Revisited
13. Ain't Talkin' (Donnie á á fiðlu)
14. Summer Days
15. Like A Rolling Stone
(uppklapp)
16. Thunder On The Mountain
17. Blowin' In The Wind (Bob á munnhörpu,Donnie á fiðlu)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.4.2008 | 09:44
Mótmælum við öll, eða hvað? - Bensínhækkanir.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.4.2008 | 22:10
Seinbúin leiðrétting, 26.maí - Dylan
Að sjálfsögðu eru tónleikarnir þann 26.maí, kl. 20 - Bob í Egilshöll.
Fréttir herma að félagar okkar í Stavanger (norsarar og fleirri) hafi brugðist snarlega við þeirri frétt að Dylan haldi þar tónleika 30. maí næstkomandi og þegar miðarnir 18.000 fóru í sölu seldust þeir allir, samdægurs!
sjá slóð: http://www.dagsavisen.no/kultur/article341842.ece
Það skiptir norðmenn engu máli þó Dylan haldi þar tónleika á hverju ári, ekki dofnar áhuginn nema síður sé. Þetta skiljum við vel dylanvinir á Íslandi, því fleirri tónleikar - því meiri áhugi. Sem sagt maður sér ekki Bob Dylan í eitt skipti fyrir öll.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Júní 2011
- Nóvember 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Tenglar
Annáll. Guðfræðiblogg o.fl.
Blogg síða
Bob Dylan, heimasíða á vegum Columbia útgáfufél.
Opinber heimasíða Bob Dylans/Columbia
Torrent tónleikasíða
Aðallega tónleikaupptökur, nýjar og gamlar.
Ágæt ljóðasíða. ljód.is
ljóð í massavís
SÁÁ
Flestir þekkja til SÁÁ, en umfang starfsins hjá samtökunum kemur mörgum á óvart. Heimasíða SÁÁ.
Fél. Áfengis og vímuefnaráðgjafa
FÁR er Félag áfengis og vímuefnaráðgjafa
Expecting Rain
Um Bob Dylan og ýmsa vini hans
Bob Dylan. Setlistar
Góð síða með setlistum og umfjöllun um tónleika Bob Dylans
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Hvaða fornaldarhugsun (í neikvæðri merkingu) er það að hvorki stjórnmálamenn né fjölmiðlar skoði á gagnrýnan hátt hugmyndir mótmælenda um undanþágur frá "reglum um hvíldartíma" Hvaða skilaboð eru þetta varðandi umferðaröryggi? Ætlum við að lifa lengi enn í undanþáguheimi vanþróunnar? Þetta förum við með til Brussel segir samgönguráðherra, æææ.
Ég skil vel almennt séð óánægju með hátt bensín og dísel verð, en samt sest að mér ógleði þegar ég sé risavaxna 4x4 bíla í mótmælaaðgerðum við Alþingishúsið.
Sjá, góða grein eftir Ómar Ragnarsson: http://omarragnarsson.blog.is/blog/omarragnarsson/entry/496605/