Leita í fréttum mbl.is

Dylan í Argentínu 13.3.08.

Á spilaranum hér til hliðar eru tónleikar Bob Dylans í Córdoba, Argentínu þann 13.mars 2008. Meistarinn Soomlos hljóðritaði tónleikana á Neumann 140, án leyfis að sjálfsögðu (susss og humm), yfirleitt er nafn þessa manns trygging fyrir bestu mögulegri upptöku. Ég hef trú á að þetta sé einn og sami maðurinn, Soomlos, því upptökurnar eru svipaðar að gæðum. Hinsvegar er ótrúlegt hvað maðurinn fer víða til að taka Dylan leynilega upp - og ekki aðra listamenn. Á seinasta ári var hann að "störfum" í USA, í Evrópu, Ásralíu og Nýja Sjálandi og nú í Suður Ameríku, hann virðist hafa góða sjóði eða traustan banka - nema hann sé starfsmaður Dylans:) 

Eins og vanalega eru lögin ekki í réttri röð, því miður, þau raðast tilviljunnarkennt upp og það er sama hvað ég pæli í þessu, ég finn ekki lausn á því, en hér er nú samt lagalistinn:

Córdoba, Argentina
Orfeo Superdomo
13.mars 2008

Lagalisti:
 
1. Leopard-Skin Pill-Box Hat (Bob á rafgítar) 
2. It Ain't Me, Babe (Bob á rafgítar) 
3. Watching The River Flow (Bob á rafgítar) 
4. Love Sick (Bob á orgel/hljómborð og áfram til loka tónleikanna, Donnie á raf-mandolín) 
5. Rollin' And Tumblin'(Donnieá raf-mandolín) 
6. Spirit On The Water (Bob á munnhörpu auk orgels) 
7. High Water (For Charlie Patton) (Donnie á banjó) 
8. Workingman's Blues #2 
9. Desolation Row (Donnie á raf-mandólín) 
10. Honest With Me  
11. When The Deal Goes Down  
12. Highway 61 Revisited  
13.  Ain't Talkin' (Donnie á á fiðlu) 
14. Summer Days  
15. Like A Rolling Stone
    
  (uppklapp)
16.  Thunder On The Mountain  
17.  Blowin' In The Wind (Bob á munnhörpu,Donnie á fiðlu) 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ótrúlega góðar upptökur of fín skemmtan

Kveðjur úr sumrinu í DK

Magnus Larusson (IP-tala skráð) 6.4.2008 kl. 10:02

2 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Takk Magnús, það er gaman að heyra frá þér. Kveðja frá þínum gamla vinnustað, Staðarfelli, en þar er ég að vinna í annað sinn.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 6.4.2008 kl. 15:32

3 identicon

Sæll - er kisan hún Týra enn á lífi?  Þóra tók hana eiginlega í fóstur þegar við fluttum - fannt nóg að við fjarlægðum 2 músabana, og okkur fannst of mikið að vera með 3 ketti í Hafnarfirði.

Magnús

Magnus Larusson (IP-tala skráð) 7.4.2008 kl. 19:23

4 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Já, Magnús, það er merkilegt að þú skulir spyrja um kisu, ég reikna með að kisan okkar hafi verið hún Týra - en ég ber þér andlátsfregn hennar. Hún lést í hárri elli í janúar 2008, að vísu var henni hjálpað yfir í eilífðina því hún gat vala gengið lengur, né borðað - hún veiddi sína seinustu mús um miðjan desember 2007(svo ég viti), svo með sanni má segja að hún hafi staðið sína pligt. Staðið vaktina alla tíð og ætíð. Hennar er enn sárt saknað hér. Hinsvegar fáum við ekki annan kött því nú er ofnæmi orðið það algengt að dýrahald á meðferðarstað gengur ekki upp, sveimér þá ef það voru ekki nokkrir alkóhólistar sem urðu að yfirgefa staðinn seinustu árin, vegna ofnæmis og þar kom Týra svoldið við sögu auk hins ógurleg frjóofnæmis.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 9.4.2008 kl. 21:32

5 Smámynd: G Antonia

kvitt og kveðja .. long time no...
Áfram Reynir og þarnæst Þróttur

G Antonia, 20.4.2008 kl. 01:44

6 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Takk takk, G Antonía, sumarið kemur brátt - með bolta og öllu hina líka.  kveðja, sþ.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 20.4.2008 kl. 02:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Já ég er Snæfellingur o.s.fr. þannig get ég lýst lífi mínu, en ef þið viljið vita eitthað meira - sláið þá bara á nefið mitt eða hattinn, ég setti einhverjar staðreyndir hér fyrir innan. Possi.

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 34048

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband