Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Tónlist

Tónlist og fótbolti

Upp úr aldamótunum 1900 var sönglistin, hljóðfæraleikur, tónleikahald - á berskuskeiði sínu á Íslandi (að mörgu leiti í frumbersku). Á sama tíma voru menn að stofan fótboltafélög, fyrsta félagið var stofnað 1899, en það var KR.  Rísandi þjóð, rísandi menning.

Á seinni árum hafa all nokkrar fótboltahallir verið byggðar - það er ágætt, en þegar var verið að vígja hverja höllina af annari þá stundi ég, íþrótta og tónlistarunnandinn, óh-og hvenær kemur að tónlistarhúsinu?

Vissulega eru þetta erfiðir tímar, en það eru góð rök fyrir því að það yrði dýrt að bíða, já og hætta við bygginguna. Við skulum sjá, eru það ekki 400 til 500 manns sem munu vinna þarna fljótlega? Skaðabætur á okkur vegna vanefnda við ýmsa vertaka og framleiðendur - o.fl.ofl.

Húsið mun standa og það munu koma nokkrar kreppur og löng velgengisskeið áður en það verður úrelt, eða fellur. Það fullyrði ég!


Is it true, is it over! Rýnum í viðlag evrusöngsins okkar.

 Lagið "Is It True" vann Eurovision forkeppnina hér heima.

Og mjög viðeigandi, verðugt, þetta er úr texta lagsins:

"Is it True, is it over, did I throw it away"

Sönn lýsing (djúpt?) úr iðu þjóðarsálarinnar, eða játning úr draumi íslenskra valdamanna?


mbl.is Lagið Is it true til Moskvu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velvilji?

Mér hefur alltaf staðið stuggur af þessum ofur velvilja, landið er í fjárhagslegri rúst - og aðilar innan EB talar aftur og aftur um hraðferð inn í sambandið. Það segir mér bara eitt, hér eru auðævi sem þeir ásækjast. Hver er samningsstaða okkar þegar allt er í rúst hér?
mbl.is Fengjum forgang inn í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland brennur!

Ég ætla ekki að hafa mörg orð um stöðu mála á Íslandi, þið eruð örugglega niðurdregin, þunglynd, kvíðin, eða bara fljótandi í áhyggjulausri afneitun, eins og að synda með kút - sem við gerðum í æsku, eða þá að þið eruð þegar til í bardagann og hafið klæðst brynju hreinlyndis og hafið sverð í hendi.

Hvað verður, veit ég ekki.

En ég er svo skrítinn að mér finnst viðeigandi að setja tvö lög á spilarann hér til hliðar, það eru lög sem Bob Dylan söng hér í Reykjavík þann 26.maí í fyrra. Þetta eru bestu hljómgæði sem hægt er að fá frá þessum  tónleikum, svona c + EN MÉR FINNST ÞETTA EKKI BARA ÆÐILEGT HELDUR VIÐEIGANDI Á ÍSLANDI Í DAG. Lögin heit: "The Leeve´s Gonna Break" og "Tryin´to Get to Heaven" 

 Humm og það er nú það, já og svo bætti ég "Nettie More" inn líka af því það hljómar svo fallega í þessari upptöku frá "Nýja" salnum í Laugardalshöllinni.


Dylan og Isis 1975

Ég man algjörlega hvaða áhrif Isis hafði á mig þegar ég heyrði lagið fyrst 1976, en þá eignaðist ég Desire plötuna hans Dylans. Er það virkilega svo að maður muni svona lagað nákvæmlega? Nei, varla, en minnistætt var það - og minnið er e.t.v. eins og mynd sem er síbreytileg, þroskast, hrörnar, stundum með lykt og tilfinningum, stundum frosin, yfirborðið eitt og hitt og þetta líka.

Hér er myndbútur úr Renaldo and Clara, kvikmynd sem Dylan framleiddi um miðjan áttunda áratuginn, hún var tekin upp á tónleikaferðalaginu Rolling Thunder Revue 1975-76, fáir sáu myndina enda var hún fljótlega dregin til baka úr dreifingu. Það er margt ágætt í myndinni að mínu mati, en best er þó algjörlega þrumandi góðar upptökur af tónleikum Dylans og félaga. Þessi tónleikaferð var merkileg tilraun sem tókst, en auk Dylans kom fram fjöldi tónlistarmanna og tónleikarnir stóðu oftast 4 til 5 tíma (að því að mig minnir) - meira um Rolling Thunder Revue seinn.

Þið ýtið bara á play takkan, ef þið viljið heyra og sjá Isis:


Leo Kottke á Bluesfest 2007

Leo Kottke þekki ég nú ekki mikið, hef hlustað á nokkur tóndæmi, hann er fæddur í Atlanta,Georgia, en menntast í Minnesota. Leikur á 6 og 12 strengja gítar blues, folk og jazz og bluegrass. Hann leikur einnig á mörg önnur hljóðfæri. 1975 gaf hann út sína þriðju eða fjórðu plötu og það hefur líklega verið við upptökur hennar sem hann hitti Bob Dylan, talaði við hann í einn og hálfan klukkutíma án þess að vita að náunginn væri Bob Dylan (hann hefur sagt skemmtilega frá þessu)

Það voru 3 upptökustúdíó þarna í sama húsi, en Dylan var á staðnum (Minneapoli minnir mig, allavega í Minnesota) að taka upp víðfrægar viðbótarupptökur á Blood on the Tracks (1974) - en platan hafði verið tekin upp í NYC og var "tilbúin"en Dylan var ekki sáttur og með aðstoð bróður síns fékk hann tónlistamenn af svæðinu með sér í stúdíó. Þeir gerðu fína hluti og þannig var platan gefin út, með mun hvassari í tón á nokkrum lögum, en margir halda meira upp á NYC útgáfuna sem hefur lengi verið fáanleg í ólöglegri bootleg útgáfu/eða útgáfum.

Hér að ofan er mynd af umslagi plötunnar sem Leo Kottke gaf út 1975.

 


Mótmælum við öll, eða hvað? - Bensínhækkanir.

 

Hvaða fornaldarhugsun (í neikvæðri merkingu) er það að hvorki stjórnmálamenn né fjölmiðlar skoði á gagnrýnan hátt hugmyndir mótmælenda um undanþágur frá "reglum um hvíldartíma" Hvaða skilaboð eru þetta varðandi umferðaröryggi? Ætlum við að lifa lengi enn í undanþáguheimi vanþróunnar? Þetta förum við með til Brussel segir samgönguráðherra, æææ.

Ég skil vel almennt séð óánægju með hátt bensín og dísel verð, en samt sest að mér ógleði þegar ég sé risavaxna 4x4 bíla í mótmælaaðgerðum við Alþingishúsið.  

Sjá, góða grein eftir Ómar Ragnarsson: http://omarragnarsson.blog.is/blog/omarragnarsson/entry/496605/


Seinbúin leiðrétting, 26.maí - Dylan

Að sjálfsögðu eru tónleikarnir þann 26.maí, kl. 20 - Bob í Egilshöll.

Fréttir herma að félagar okkar í Stavanger (norsarar og fleirri) hafi brugðist snarlega við þeirri frétt að Dylan haldi þar tónleika 30. maí næstkomandi og þegar miðarnir 18.000 fóru í sölu seldust þeir allir, samdægurs!

sjá slóð:  http://www.dagsavisen.no/kultur/article341842.ece

Það skiptir norðmenn engu máli þó Dylan haldi þar tónleika á hverju ári, ekki dofnar áhuginn nema síður sé. Þetta skiljum við vel dylanvinir á Íslandi, því fleirri tónleikar - því meiri áhugi. Sem sagt maður sér ekki Bob Dylan í eitt skipti fyrir öll. gothenburg_3

Bobgonnaflash


Bob Dylan á Íslandi 29.maí 2008!

Grin Það er staðfest að Bob Dylan and his Band verða með tónleika í Reykjavík fimmtudaginn 29.maí 2008!!

Þið sjáið á þessari slóð að tónleikarnir eru komnir inn með dagsetningu og eru sagðir óstaðfestir:  http://www.boblinks.com/   en boblinks birt nánast aldrei dagsetningar á tónleikum nema samningar séu í höfn. Ég hef eftir áreiðanlegri heimild að samningar séu frágengnir, heimildarmaðurinn hefur tengsl í tónlistar og umboðsbransan hér á landi.

Bravó, bravisómó!! Til hamingju kæru landar að hafa tækifæri á að sjá og heyra Bob hér heima með frábærri hljómsveit og á enn einum hápunkti síns ferils.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Já ég er Snæfellingur o.s.fr. þannig get ég lýst lífi mínu, en ef þið viljið vita eitthað meira - sláið þá bara á nefið mitt eða hattinn, ég setti einhverjar staðreyndir hér fyrir innan. Possi.

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 34036

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband