Leita í fréttum mbl.is

Jæja Bob Dylan - Íslendingar eru ekki afleitir.

Það er nokkuð ljóst að ekki selst upp á tónleika Bob Dylans í kvöld. Það má svosem kenna efnahagsástandinu um það að nokkru leiti og svo miklu framboði á tónleikum eldri listamanna í popp og rokk geiranum. Ég vona að tónleikahaldarar fari ekki á hausinn á þessu.  Ég gæti skrifað langa ræðu um gæði Dylans og hneykslast á landanum, en það gerir mig bara pirraðann. Ég og mín fjölskylda eigum von á hörkutónleikum og við hvetjum ykkur öll að splæsa í miða vegna þess að Bob er enn frumlegur. Sjáumst í Nýju Höllinni í kvöld kl. 20:00

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Ingi Andrésson

Það eru fleiri skýringar en yfirvofandi heimsendir á Íslandi. Hinn frábæri konsert sem hann hélt í Höllinni í denn hefur alltaf verið fordæmdir og var talinn lélegur. Það er líka þekkt að hann er ekki að spila sína gullaldartónlist. Þó seinni tíma plöturnar sé alveg ágætar þá hafa þeir ekki náð margra eyrum.

Konsertinn var annars ok - band pró en leiðinlegt - sándið gott - HÚSIÐ HÖRMULEGT MARGFALT VERRA EN EGILSHÖLL! Þar er sviðið þó mun hærra.

Þegar ég fer á live konsert er grundvallar atriði að sé goðið (ekki bara bakið á honum þegar maður reigir sif og stendur á tánum) Hann hafði greinilega annað hvort sagt hljómborðsleikarum upp eða gleymt að ráða hann. Hann stóð á hlið á sviðinu við hljómborðið allan tímann. Til hvers var míkrafónninn á miðu sviðinu og enginn í spotlightinu. Sorrí pínu spældur í þetta sinn. Var þetta fyrsti konsertinn á eftirlaunum?

Halldór Ingi Andrésson, 26.5.2008 kl. 23:43

2 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Takk Halldór Ingi, góður þessi:" Var þetta fyrsti konsertinn á eftirlaunum"

Svar: nei, reyndar ekki, Dylan var með tónleika í St. John´s á Nýfundnalandi 24.maí þ.e. á afmælisdaginn. 

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 27.5.2008 kl. 18:56

3 identicon

Sæll Sveinbjörn,ég missti af þér í gær.Ég fór á tónleikana í gær ásamt synum mínum 14 og 18 ára við vorum sáttir með okkar mann.Það er samt illþolandi að sjá og heira þennan meistara í svona ömurlegu tónleikarými.En það var samt gaman,Dylan mafían öll á staðnum sem er viðburður útaf fyrir sig.Við fórum svo allir á eftir niður á Grand Rokk og skemtum okkur þar ásamt útlendingunum sem hafa séð Dylan á tónleikum 200 +.Læt þig vita þegat upptökur koma í hús.

Kveðja Óli Haukur

Ólafut Haukur (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 22:41

4 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Þó seint sé, þetta voru magnaðir tónleikar, meira að segja betri en í hinni höllinni hérna um árið. Ég naut þeirra forréttinda að fá sæti enda gamall maður og þar sem ég sat var hljómburðurinn fínn. En tek undir með mörgum, þessi salur er ekki boðlegur fyrir konserta, efalaust ágætur fyrir matvælasýningar...

Guðni Már Henningsson, 16.6.2008 kl. 13:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Já ég er Snæfellingur o.s.fr. þannig get ég lýst lífi mínu, en ef þið viljið vita eitthað meira - sláið þá bara á nefið mitt eða hattinn, ég setti einhverjar staðreyndir hér fyrir innan. Possi.

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband