3.8.2007 | 21:40
Bob Dylan, mesti aula-húmoristi aldarinnar sem leið!
Ég gæti skrifað langa og þó nokkuð lærða grein um húmor í texta Bob Dylans, gæti það alveg en geri ekki. Það yrði örugglega leiðinleg grein, ætli það yrði ekki húmorslaus grein sem við hæfi væri að birta neðanmáls í Vikunni. Og það er ekki af því að texta Dylans skorti húmor, hér og þar - en ekki alls staðar - bókstaflega ólga söngtextar hans af kátínu, kímni og ögrandi skopskyni.
Nei, ég tók það ráð að setja saman dæmi um húmor Dylans með því að setja live flutning af nokkrum minna þekktum lögum hans á spilarann hér til hliðar - og með þeim eru nokkur dæmi um dálæti Dylans á aulahúmor: kynningum hans á tónleikum fylgja oft litlar sögur, sannir aulabrandarar. Því miður kann ég ekki á stillingar spilarans, svo vandvirknisleg uppröðun brandara og laga fór öll úr skorðum, EN ÞAÐ ER ALLT Í LAGI. Lögin og kynningar eru þarna út um allt, merkt með T sýnist mér því ég gaf mér ekki tíma til að vinna þetta vel. Þetta eru gimsteinar sem þið getið týnt upp, sum lögin koma á óvart, hafa ekki verið gefin út opinberlega eins og t.d. Vincent VanGogh (leiðréttið mig snillingar, ef ég fer með rangt mál)
Svo bendi ég ykkur vinir mínir á lagið ''Floater,too much to ask'' sem er einnig á spilaranum, það lag kom út 2001 á Love And Theft og ef þar er ekki sjóðandi gæða húmor - þá má ég hundur heita.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bloggfærslur 3. ágúst 2007
Eldri færslur
- Júní 2011
- Nóvember 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Ágúst 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Janúar 2007
- Apríl 2006
Tenglar
Annáll. Guðfræðiblogg o.fl.
Blogg síða
Bob Dylan, heimasíða á vegum Columbia útgáfufél.
Opinber heimasíða Bob Dylans/Columbia
Torrent tónleikasíða
Aðallega tónleikaupptökur, nýjar og gamlar.
Ágæt ljóðasíða. ljód.is
ljóð í massavís
SÁÁ
Flestir þekkja til SÁÁ, en umfang starfsins hjá samtökunum kemur mörgum á óvart. Heimasíða SÁÁ.
Fél. Áfengis og vímuefnaráðgjafa
FÁR er Félag áfengis og vímuefnaráðgjafa
Expecting Rain
Um Bob Dylan og ýmsa vini hans
Bob Dylan. Setlistar
Góð síða með setlistum og umfjöllun um tónleika Bob Dylans
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tónlistarspilari
Myndaalbúm
Nýjustu færslurnar
- Samkeppnis kapítalistarnir fljúga frá skuldum.
- Ég óttast að - Sáttmáli við bandr. ríkið - Trump vill Háskólar landsins undirgangist; feli í sér upphaf á opinberri ritskoðun í Bandaríkjunum á vísindum! Er gæti leitt til hugsanlega mikils tjóns fyrir vísindi þar í landi!
- Skrattinn úr sauðarleggnum frá Brüssel
- Fyrstu skil af fyrstu ritgerð Milliliðir úr Háskóla Íslands á Haustönn 2025 með APA-7 heimildaskrár.
- Ritgerð um Gylfaginningu, Ásgarður og Askur Yggdrasils er tekin í gegn af sjáfstæða rithöfindinum Milliliðir sem er enná að læra á lífið