Leita í fréttum mbl.is

Bob Dylan og The Greenbriar Boys


 

Hér eru tvær myndir, til vinstri, Bob 1961 með Greenbriar Boys líklega í Gerde´s Folk City í Þorpinu, NYC. Þriðja félaga Greenb.Boys vantar á myndina, en Bob var aukanúmer á tónleikum þeirra (vona að ég sé ekki að rugla þeim saman við The New City Ramblers, jæja tek þá áhættu)  Til hægri, 45 árum síðar í Assago á Ítalíu 27.apríl 2007 og það er vel þess virði að taka eftir félaga Óskari á magnaranum hægra megin við Dylan (Óskarsverðlaun fyrir lagið Things have Changed árið 2000 úr kvikmyndinni Wonder Boys - og síðan hefur Óskar ætíð verið í farteskinu á tónleikaferðum)

GaslightCafe62Assago_bluesky_3

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Sveinbjörn.

Gott framtak hjá þér að lofa ploggvinum að hlusta á nýjar tónleikaupptökur með Dylan.Er sjálfur kominn með 5 tónleika frá haustinu.Dylan mafían þarf að fara að hittast

Kv.Óli Haukur

Ólafur Haukur (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 19:18

2 identicon

já, þetta er ekki nokkur frammistaða hjá formanninum. ég mæli með breytingum og að annað hvort Óli eða Possi, taki við. Annars yljar þessi Assago mér mikið, einn af betri konsertum sem ég hef séð

Birgir (IP-tala skráð) 18.10.2007 kl. 00:12

3 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Já, Birgir varst þú þar, í Assago?  Núna er ég með tónleika frá Portland í október á spilaranum, góður hljómur þar.

Eigi mæli eg með að velta formanni Vorum! - en allar góðar tillögur um hitting eru væntanlega velkomnar, við vorum að tala um að skoða  The Other side of the Mirror um leið og einhver góður maður fær dvd diskinn.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 18.10.2007 kl. 18:33

4 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Næ ekki að hlusta núna en geri það fyrr en síðar...og fæ ég að mæta á næsta fund sem áheyrnarfulltrúi?????

Guðni Már Henningsson, 20.10.2007 kl. 16:31

5 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Vertu hjartanlega velkominn Guðni Már. Við höfum síðustu tvö skiptin hittst alveg við garðshornið hjá vinnustaðnum þínum, þ.e. í Göngudeild SÁÁ Von - Efstaleiti 7.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 20.10.2007 kl. 19:30

6 identicon

Það vill svo til að mér hefur aldrei tekist að koma auga á hann Óskar á þeim tónleikum sem ég hef sótt. Þetta eru undarleg örlög! Kannski tekst það á næstu Oslóartónleikum, sem ég vona að verði eins góðir og þeir síðustu (og þá þurfa þeir að vera rosalega góðir).

Þorkell Ágúst Óttarsson (IP-tala skráð) 30.10.2007 kl. 06:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Já ég er Snæfellingur o.s.fr. þannig get ég lýst lífi mínu, en ef þið viljið vita eitthað meira - sláið þá bara á nefið mitt eða hattinn, ég setti einhverjar staðreyndir hér fyrir innan. Possi.

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 34045

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband