Leita í fréttum mbl.is

Hamborg 3.júlí 1990

Til gamans seti ég inn á spilarann (hér til hćgri) tónleika Bob Dylans frá Hamborg, 3.7.1990. Ţetta er ađeins nokkrum dögum eftir ađ hann var í Reykjavík međ tónleika og hér heyrist vel hversu góđur Dylan og hljómsveitin voru á ţessum tíma. Reyndar á ţađ viđ um flesta tíma!

Menn hafa sett fram ţá fullyrđingu í fjölmiđlum ađ tónleikarnir í Laugardalshöll 1990 hafi veriđ lélegir, um ţađ eru skiptar skođannir, sumir segja hreint frábćrir tónleikar - ađrir miđlungs, en lélegir ţađ er af og frá. Persónulega fannst mér nóg bara ţađ ađ fá tćkifćri til ađ vera á stađnum, á tónleikum hjá honum. Ţađ var bónus ađ heyra hann flytja góđa útgáfu af Hard Rain, Gotta Serve Somebody og Shooting Star - já, ég má ekki gleyma Ballad of a Thin Man. Ég var sáttur.  Upptökur af tónleikunum í Höllinni eru til, ég á eintak, en hljómgćđi upptökunnar er ekki af bestu gerđ (finnst mér) svo ég sleppi ţeim ekki lausum hér. 

Setlistinn í Hamborg:  

1.Most Likely You Go Your Way (And I'll Go Mine)
2.Ballad Of A Thin Man
3.Stuck Inside of Mobile With the Memphis Blues Again
4.I Believe In You
5.Masters of War
6.Gotta Serve Somebody
7.It's Alright, Ma (I'm Only Bleeding)
8.It's All Over Now, Baby Blue
9.Desolation Row
10.The Lonesome Death of Hattie Carroll
11.It Ain't Me, Babe
12.Everything Is Broken
13.No More One More Time
14.Political World
15.Old Rock & Roller
16.All Along the Watchtower
17.I Shall Be Released
18.Like A Rolling Stone
19.Blowin' in the Wind
20.Highway 61 Revisited

Lag númer 15 er eftir Charlie Daniels og er eina skiptiđ sem Dylan hefur flutt ţađ opinberlega (sá gerir ţađ vel) Lag númer 13 No more one more Time hefur Dylan flutt ţrisvar, en veit einhver eftir hvern lagiđ er?

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég var ekki hrifinn af tónleikunum í Laugardalshöll. Ég ţori alveg ađ viđurkenna ţađ :-)

Ţorkell (IP-tala skráđ) 8.2.2008 kl. 05:04

2 Smámynd: Halldór Ingi Andrésson

No More One More Time er eftir Troy Seal og Dave Kirby og Dylan hefur líklega kynnst ţví hjá Jo-el Sonnier á plötunni Come On Jo frá 1990. Sonnier spilar á nikku og syngur cajun og er nokkuđ góđur.

Halldór Ingi Andrésson, 9.2.2008 kl. 23:42

3 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Ţorkelsson

Takk fyrir Halldór Ingi, ég reikna međ ađ Sonnier sé Suđurríkjamađur, best ađ slá honum upp.

Ţorkell, ţú ţorir - fínt, en gaman vćri ađ heyra rök fyrir ţessu hjá ţér.

Sveinbjörn Kristinn Ţorkelsson, 10.2.2008 kl. 00:10

4 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Ţorkelsson

já, ţetta segja ţeir á heimasíđu kappans, Jo-el Sonnier:

 Jo-El Sonnier was born in Rayne, Louisiana to poor, French-speaking sharecroppers.

Sveinbjörn Kristinn Ţorkelsson, 10.2.2008 kl. 00:15

5 identicon

Mér fannst öll lögin hljóma svipuđ, sérstaklega vegna ţess ađ röddin var ekki í besta formi. Annars hef ég ekki heyrt tónleikana aftur svo ţađ er erfitt ađ rifja upp ákveđin atriđi. Man bara ađ ég var frekar skúffađur.

Ţorkell (IP-tala skráđ) 10.2.2008 kl. 02:42

6 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Ţorkelsson

Já, skil ţađ vel - Ţorkell, en ég held ađ hljómburđur Hallarinnar hafi haft sitt ađ segja á neikvćđan hátt, ţví ef ţú hlustar á hluta af lögunum sem ég er međ núna á spilaranum (eđa alla tónleikana) ţá heyrast alveg sömu útsetningarnar og röddin er fín. Örugglega er ţetta hinn frćgi dagamunur á tónleikum Dylans, skilst ađ seinkun á flugi frá USA hafi veriđ 7 eđa 13 tímar og svo heyrum viđ frábćra tónleika á Roskilde hvađ, 2 dögum eftir Reykjavík. Annars skiftir ţađ ekki máli, ţví fyrir okkur (mig og ţig) ţarf Dylan ekki ađ sanna neitt.

Sveinbjörn Kristinn Ţorkelsson, 10.2.2008 kl. 03:12

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Já ég er Snæfellingur o.s.fr. þannig get ég lýst lífi mínu, en ef þið viljið vita eitthað meira - sláið þá bara á nefið mitt eða hattinn, ég setti einhverjar staðreyndir hér fyrir innan. Possi.

Fćrsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 34049

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband