Leita í fréttum mbl.is

Og Þróttur hikstar enn!

Ó, jæja, enn dregst það að Þróttarar sanni ágæti sitt (í 1.deild karla, knattspyrnu), í dag töpuðu þeir fyrir ÍBV 1-2 og þá ræðst staða okkar (Þróttara) í deildinni í seinasta leik - næsta föstudag er seinasti leikurinn og hann er við Reyni í Sandgerði sem núna er í fallsæti. Reynir virðist vera í nær vonlausri stöðu og það er auðvitað stórhættulegt fyrir Þrótt. Ef ég man rétt þá var þjálfari Þróttar, Gunnar Oddson, þjálfari Reynis í fyrra - þegar þeir fóru upp um deild, skondið, eða öllu heldur kaldhæðinslegt. Hugur minn er svoldið hjá Reynismönnum því það er svo svekkjandi að falla strax að ári, en til að Reynir haldi sæti sínu í deildinni þyrfti KA að tapa stórt fyrir Þór og þeir að vinna Þrótt örugglega. Sem auðviðað er ekki inni í myndinni hjá okkur Þrótturum.

Marki fagnað


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: G Antonia

Eins og sagt frá mínu hjarta, hárrétt! En aldrei er öll von úti  eða hvað?

G Antonia, 23.9.2007 kl. 22:38

2 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Ó,nei - vonin blíð og allt það.  

Allavega fer ég á völlinn á föstudaginn kemur, suðurfrá.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 26.9.2007 kl. 23:43

3 Smámynd: G Antonia

Já. velkominn!! Ég held ég geti mætt líka, verð rétt lent í Keflavíkinni fyrir föstudag, og mæti ef ég hef "taugar" í það.... og laumast þá kannski til að kíkja eftir þér ... svona inn á milli þegar lítið er að gerast á vellinum hehe!!!  En vonumst eftir spennandi og sanngjörnum leik.........og auðvita að kraftaverk verði hjá Reyni!!!  

G Antonia, 27.9.2007 kl. 00:45

4 Smámynd: G Antonia

Innilega til hamingju  seinni hálfleikur einkenndist af baráttu hjá báðum liðum og hefði vel getað orðið jafnari úrslit....
Sandgerðisvöllur fullur af þrótturum, Reynismönnum, og nokkrum Eyjamönnum...
En svona er þetta í íþróttum,einhver verður að tapa og gera þá bara betur næst   - það kemur dagur eftir þennan dag!!!
Til hamingju þróttarar !!!

G Antonia, 29.9.2007 kl. 00:36

5 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Þakka þér fyrir Guðbjörg Antonia, þetta var kannski ekki flottasti leikur sumarsins, en verkefni Reynismanna var nær óvinnandi þar sem þeir þurftu að vinna eitt efsta lið deildarinnar og treysta því að KA tapaði mjög stórt fyrir Þór. Við Þróttarar erum auðvitað mjög ánægðir, nú er að sjá hvort við höldum okkur í efstu deildinni næsta sumar. Það vantaði nokkra mjög skemmtilega menn í lið Þróttar, en útkoman var samt fín.

Mér fannst Reynismenn berjast mjög vel í síðara hálfleik, en það er eins og þeir hafi ekki verið mættir á svæðið í fyrri hálfleik, allavega fengu þeir tvö mörk á sig snemma í leiknum. Ég sá ekki fyrsta markið því ég og Höskuldur vinur minn komum aðeins of seint til leiks, en annað markið var stórglæsilegt. Mér fannst aðstaðan ágæt í Sandgerði, þó völlurinn sjálfur hafi verið svona lala eftir rigninguna undanfarið. 

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 29.9.2007 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Já ég er Snæfellingur o.s.fr. þannig get ég lýst lífi mínu, en ef þið viljið vita eitthað meira - sláið þá bara á nefið mitt eða hattinn, ég setti einhverjar staðreyndir hér fyrir innan. Possi.

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 34048

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband