Leita í fréttum mbl.is

Meet Me in the Morning, Bob Dylan

Þau tíðindi bárust í morgun að á tónleikum í gærkvöldi í Nashville, Tennessee, hafi Bob Dylan flutt Meet Me in the Morning í fyrsta skipti live á tónleikum og Jack White tók undir í söng og gítarleik. Og hvað með það gæti einhver spurt, ja það er nú bara þannig að þetta lag er af einni bestu plötu Dylans, Blood on the Tracks, og þó það sé ekki það þekktasta af plötunni þá er það ekki minniháttar lag, heldur tilfinningaþrungið blúslag með þó nokkrum blús textafrösum - en með sannri tilfinningu. Og aðalatriðið er auðvitað að það hefur aldrei verið flutt opinberlega fyrr og það er eitt af því sem gerir lífið skemmtilegt hjá Dylanvinum að rekast óvænt á gamla vini á tónleikum - þó þeir hafi ekki sést í segjum 32 ár (Blood on the Tracks kom út 1975). Jack White er annar tveggja meðlima The White Stripes og hann er einmitt fæddur 1975!

Lagalisti:   
Nashville, Tennessee
Ryman Auditorium

September 19, 2007

1.Leopard-Skin Pill-Box Hat (Bob á rafgítar)
2.Don't Think Twice, It's All Right (Bob á rafgítar)
3.Watching The River Flow (Bob á rafgítar)
4.You're A Big Girl Now (Bob á píanó og munnhörpu)
5.The Levee's Gonna Break
(Bob á píanó, Donnie á mandólín)
6.Spirit On The Water (Bob á píanó og munnh.)
7.Desolation Row (Bob á píanó og munnh, Donnie á mandólín)
8.Workingman's Blues #2 (Bob á píanó)
9.Things Have Changed (Bob á píanó, Donnie á fiðlu)
10.Most Likely You Go Your Way (And I'll Go Mine)
(Bob á píanó)
11.Meet Me In The Morning (first live concert performance)
(Bob á rafgítar og söngur, Jack White á rafgítar og söngur)
12.Highway 61 Revisited (Bob á píanó)
13.Nettie Moore (Bob á píanó, Donnie á fiðlu)
14.Summer Days (Bob á píanó)
15.Masters Of War (Bob á píanó)
  
 (uppklapp)
16.

Thunder On The Mountain (Bob á píanó)

17.

Blowin' In The Wind (Bob á píanó og munnhörpu)

Textabrot úr Meet me in the Morning:

Look at the sun sinkin' like a ship
Look at the sun sinkin' like a ship
Ain't that just like my heart, babe
When you kissed my lips?

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú er bara að vona að hann flytji Dirge bráðlega. Veistu annars hve mörg laga hans hann hefur aldrei flutt á tónleikum?

Þorkell (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 06:25

2 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Það væri stórskemmtilegt ef Bob flytti Dirge einn góðan veðurdag og það er aldrei að vita að það nema sá dagur komi, enginn veit og enginn veit.

Ég myndi allavega tryggja mér bootleg af þeim tónleikum STRAX ef hann flytti einhvertíma Dirge,  svo væri gaman að heyra Changing of The Guards eða Clothes Line Saga svo maður nefni bara tvö lög undir C. En svo væri svo margt sem gaman væri að gerðist í lífinu og maður fær engu um það ráðið.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 20.9.2007 kl. 22:40

3 identicon

OUT LAW BLUES flutt seinna kvöldið í Nashville!! Bob og Jack tóku núna tvö lög olb og One more cup of coffee. Bíð spenntur eftir umsögnum frá þessum tónleikum!
sion

ps - hvað erum við eiginlega að gera á klakkanum Sveinbjörn?

sion (IP-tala skráð) 21.9.2007 kl. 07:31

4 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

HaHa Sion, ójá- við erum í brauðstritinu!

Þetta er rosalegt, að heyra þá saman í One More Cup Of Coffee hlýtur að vera sælgæti og Out law Blues af Highway 61 Rev. Þvílík undur. 

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 21.9.2007 kl. 17:48

5 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Úbbs, ég meint auðvitað að Outlaw blues sé af Bring it All Back Home, og hananú.

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 21.9.2007 kl. 18:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Já ég er Snæfellingur o.s.fr. þannig get ég lýst lífi mínu, en ef þið viljið vita eitthað meira - sláið þá bara á nefið mitt eða hattinn, ég setti einhverjar staðreyndir hér fyrir innan. Possi.

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 34048

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband