Leita í fréttum mbl.is

Er þetta landflóttinn?

úr frétt: "Fólksfækkun varð á landinu á árinu 2009 í fyrsta sinn frá lokum 19. aldar. Þann 1. janúar 2010 voru 317.630 íbúar með fasta búsetu á Íslandi, samanborið við 319.368 ári áður. Fækkunin nemur hálfu prósenti. Á síðustu fimm árum hefur fjölgun landsmanna þó verið hlutfallslega ör eða 1,6% á ári að jafnaði."

1738!! Mér finnst þetta nú ekki vera mikið, þó við verðum að taka mark á nýfæðingum og dánartíðni (sem fréttin fer ekkert út í)  1738 færri manneskjur búa hér en í fyrra, en þá þarf auðvitað að taka mark á að fjölgunin stöðvaðist, 1.6% fjölgun er yfir 4000 manns - en á seinustu 5 árum voru auðvitað óðlilegir tímar, þenslutímar. Ég veit ekki hver eðlileg fjölgun þjóðarinnar er, veit þó að okkur hefur yfirleitt fjölgað meira en norður Evrópuþjóðum vegna fjölda barnsfæðinga.

Sumum finnst slæmt að fækkunin hafi ekki verið meiri, færri fara utan til að afla sér menntunnar, færri utan til vinnu - af því að vinna er ekkert auðfengin í nágrannalöndunum og meiri
birgðar eru á atvinnuleysistryggingum en ella.  Við höfum semsagt notið þess (hingað til)  að í okkur er flökkueðli og forvitni, - við erfiðleika hér heima hafa menn og konum leitað utan til vinnu og náms, Ísland hefur því oft verið fljótt að jafna sig á efnahagserfiðleikum.  Þetta gerðist seinast 1968, en ekki svo mikið 1990 (eða upp úr 1990, þá skilst mér að lægð hafi verið) og kannski ekki svo mikið núna - þegar réttindi okkar eru mikil í allri Evrópu (núna) erum við þá hætt að stunda þessa þjóðaríþrótt? Ekki handboltann, heldur landflóttann.

Að lokum vil ég minna á að Rubber Soul er besta plata The Fab Four, The Beatles:))


mbl.is 317.630 bjuggu hér um áramótin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson
Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Já ég er Snæfellingur o.s.fr. þannig get ég lýst lífi mínu, en ef þið viljið vita eitthað meira - sláið þá bara á nefið mitt eða hattinn, ég setti einhverjar staðreyndir hér fyrir innan. Possi.

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 34050

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband